
Magnús Kjartan
Trúbador
Magnús Kjartan Eyjólfsson er söngvari og gítarleikari Stuðlabandsins og hefur hann um árabil komið fram á fjölbreyttum viðburðum um land allt, allt frá bæjarhátíðum og tónleikum til árshátíða og skemmtana sem trúbador.
Magnús hefur einnig verið áberandi á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þar sem hann stjórnaði brekkusöngnum í fimm ár, frá 2021 til 2025. Brekkusöngurinn er eitt stærsta og þekktasta tónlistaratriði hátíðarinnar og þar hefur Magnús leitt þúsundir gesta í sameiginlegum söng á hverju ári við frábærar undirtektir.
Senda fyrirspurn
Hafðu samband við Magnús ef þig vantar trúbador!








